Næsti leikur......30.jan við Álftanes kl 12:30.

Næsti leikur ÍBV er í Eyjum þann 30.jan á móti Álftanes kl 12:30. Það var fín mæting á leikinn við HK.    Vonandi geta sem flestir mætt á næsta leik og stutt strákana okkar í baráttunni.  
ibvkarfa.net180538_105619736179438_100001942368087_48583_3207750_n.jpg750_n


Sigur í toppleik. ÍBV - HK

Sigurganga HK stöðvuð.Leikurinn byrjaði þannig að bæði lið skiptust á forystu en okkar strákar tóku við sér og náðu 11 stiga forystu í lok leikhlutans 22 - 11.      2.leikhluti byrjaði vel fyrir ÍBV og var staðan orðin 36-13 um hann miðjan.    Þá kom mjög slæmur kafli hjá okkar strákum og HK saxaði á forystuna og í hálfleik var staðan 42-38 ÍBV í vil.     Eitthvað hefur Jón þjálfari sagt við strákana inn í klefa því þeir komu tvíefldir til leiks í seinni hálfleik.    Baráttan var til staðar og ÍBV raðaði niður körfunum.     Forysta ÍBV jókst mjög fljótt og munaði 20 stigum á liðunum í lok 3.leikhluta 69-49.      Þetta var forysta sem þeir gáfu ekki eftir og uppskáru góðan sigur 86-66 á sterku liði HK.

Þetta var fínn leikur í heildina hjá strákunum allir að standa sig vel. Þorvaldur kom sterkur inn í leikinn og skoraði 7 þriggja stiga körfur. Hlynur kom einnig sterkur inn og má segja að þetta sé með hans betri leikjum í vetur.  Einnig má nefna að þetta er fyrsti tapleikur HK í vetur.   

Stigaskor í leiknum var eftirfarandi:  Þorvaldur Kristjánsson 21 stig,Jón G. Magnússon 15 stig,  Hlynur Andrésson 13 stig, Brynjar Ólafsson 12 stig, Sigurjón Lárusson 9 stig, Daði Guðjónsson 8 stig, Smári Þorvaldsson 6 stig, Heiðar Ingimarsson 2 stig, Tómas Orri Tómasson,  Jóhann Rafnsson, Sigurður Benónýsson, Guðgeir Clark.

Næsti leikur ÍBV er í eyjum þann 30.jan á móti Áltfanes kl 12:30. Það var fín mæting á leikinn í dag og við þökkum fyrir þann stuðning.    Vonandi geta flestir mætt aftur í næsta leik og stutt strákana okkar í baráttunni.  

ÍBV - HK umfjöllun, ibv.is.    http://ibvkarfa.net/


Skoraði 57 stig í sigri ÍBV í dag og endaði á flautukörfu.

Sunnudaginn 05. desember kl. 14.30
Körfubolti: ÍBV - KV 104:89

- Jón Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV sjóðheitur í dag og skoraði flautukörfu í lok leiks

 Jón Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV í körfubolta skoraði 56 stig í dag.
Jón Gunnar Magnússon, þjálfari körfuknattleiksliðs ÍBV fór á kostum í dag þegar liðið tók á móti Reykjavíkurliðinu KV í Eyjum.  Jón Gunnar skoraði hvorki meira né minna en 57 stig í leiknum í dag, sem er líklega hæsta stigaskor leikmanns í Eyjum frá upphafi.  Það þarf varla að taka það fram að þetta er líka það mesta sem Jón Gunnar hefur skorað í einum leik.  ÍBV vann nokkuð þægilegan sigur, 104:89 en staðan í hálfleik var 55:44.

Fyrsti leikhlutinn var í járnum og að honum loknum höfðu Eyjamenn eins stigs forystu 27:26.  En í 2. leikhluta small vörnin saman, gestirnir skoruðu aðeins 18 stig á móti 28 stigum ÍBV og staðan í hálfleik eins og áður sagði 55:44.  Eyjamenn juku muninn enn meira í 3. leikhluta, í 84:65 en gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna í síðasta leikhlutanum. 
Bestu tilþrif leiksins átti svo Jón Gunnar en Eyjamenn unnu boltann þegar rúmar tvær sekúndur voru eftir af leiknum.  Jón Gunnar fékk boltann út við hliðarlínu, líklega tveimur metrum fyrir aftan miðlínu og lét vaða á körfuna og um leið og lokaflautan gall fór boltinn beint ofan í.  Glæsileg tilþrif hjá hinum sjóðheita þjálfara ÍBV.  Þess má til gamans geta að Jón Gunnar er að stíga upp úr flensu sem skýrir hugsanlega þennan mikla hita í leikmanninum.
Stig ÍBV: Jón Gunnar Magnússon 57, Sigurjón Lárusson 19, Þorvaldur Kristjánsson 12, Smári Þorvaldsson 5, Daði Guðjónsson 5, Hlynur Andrésson 4, Tómas Orri Tómasson 2.

Fram - ÍBV 75-79

28. nóvember 2010

Fram - ÍBV 75-79 umfjöllun af  http://ibvkarfa.net/frettir

vantar mynd
 28.nóvember  mættust lið Fram og ÍBV í kennaraháskólanum. Leikurinn var jafn nánast allan fyrri hálfleikinn og skiptu liðin á að leiða. Fyrsti leikhluti endaði 14-14. Sama var upp á teningnum í 2.leikhluta en okkar menn náðu að leiða með einu stigi 36-37 þegar liðin gengu inn í búningsklefann í hálfleik. Fram var að hitta vel og ÍBV virtist vera á hælunum og voru ekki að framkvæma hluti vel á vellinum. 

 Eitthvað hefur þjálfari eyjamanna sagt í hálfleik því ÍBV byrjaði af fínum krafti og fljótlega var staðan 46-39. Krafturinn dvínaði því miður sem leið á leikhlutann og náðu Framarar að komast að hlið ÍBV undir lok leikhlutans. ÍBV hélt samt áfram sínu eins stigs forystu og var staðan eftir 3.leikhluta 62-63. 4.leikhluti byrjaði svipað og sá á undan. Krafturinn kominn aftur í ÍBV og staðan var 66-76 okkur í vil þegar skammt var eftir af leiknum. Framarar náðu að saxa á forystuna og náðu þessu í 2 stig þegar lítið var eftir. ÍBV náði þó að halda út leikinn og endaði leikurinn 75-79.
Leikmannahópur og stigaskor
Hlynur Andrésson 8 stig
Arnsteinn Jóhannesson 2 stig
Daði Guðjónsson 4 stig
Sigurjón Lárusson 13 stig
Tómas O. Tómasson 
Jón G. Magnússon 25 stig
Þorvaldur Kristjánsson 10 stig
Smári Þorvaldsson 5 stig
Brynjar Ólafsson 12 stig

Tap í bikar.

 Poweradebikarinn hjá m.fl:

ÍBV tapaði 63 -85 þrátt fyrir stórleik í 1.sta leikhluta.  Ál augardaginn  fór fram leikur ÍBV og Stálúlfs í forkeppni Poweradebikarsins. Og til að gera langa sögu stutta þá tapaði ÍBV með 22 stigum, 63 - 85.    Þrátt fyrir frábæra byrjun hjá leikmönnum ÍBV í fyrsta leikhluta, þegar hver þristarnir eftir annan flugu ofan í körfuna. En eftir það vöknuðu gestirnir af værum blund.  sbr. http://ibvkarfa.net/frettir


ÍBV mætir nýju íþóttafélagi í bikarnum,kl 12,30, á laugardag.

ÍBV leikur við Stál-Úlfa sem er nýtt íþóttafélag, Laugardaginn 30. okt. 2010 kl.12:30 í  Íþróttamiðstöðinni.  Leikurinn er  í forkeppni í Powerradebikar karla í körfuknattleik. 

STÁL ÚLFUR ENDANLEG ÚTGÁFA 31,05,2010Nýtt íþróttafélag hefur verið stofnað innan UMSK og hefur það aðsetur í Kópavogi      
Íþróttafélagið Stál úlfur var stofnað í byrjun árs af nokkrum þekktum litháískum íþróttamönnum sem búa hér á landi. Hefur það aðstöðu í Kórnum í Kópavogi.

Meðal stofnenda eru handboltamennirnir Ramune Pekarskyte (Haukum), Kristina Kvedariene (FH), Romualdas Gecas (HK).

Tilgangur íþróttafélagsins er iðkun íþrótta og að efla áhuga almennings á gildi íþrótta og heilbrigðra lífshátta. Auk þess hefur félagið þann tilgang að aðstoða innflytjendur við aðlögun að íslensku samfélagi með því að stuðla að virkum samskiptum milli Íslendinga og innflytjenda í gegnum íþróttir.

„Vegna allra þessara neikvæðu frétta í blöðunum þá er þetta eitthvað sem við viljum að sjálfsögðu að bæti ímynd innflytjenda,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Tilurð félagsins má rekja til þátttöku körfuboltaliðsins Lituanica í 2. deild karla síðasta haust. Körfuknattleikssamband Íslands setti það sem skilyrði að stofnað yrði íþróttafélag í kringum liðið og þá fór boltinn að rúlla.

„Í dag erum við með meistaraflokka karla í körfubolta og fótbolta og við eigum von á að fleiri íþróttir bætist í flóru félagsins í framtiðinni. Svo viljum við hvetja sem flesta til að kikja við hjá okkur, sérstaklega fólk af erlendum uppruna, sem býr hér og vill stunda íþróttir.Við vonum að íþróttafélagið Stál úlfur verði góður vettvangur fyrir alla með öfluga starfsemi og ýmsa viðburði.“


Naumt tap gegn HK.

14199-edc95fe8cc817be12731f2629289a2f0 HK-menn byrjuðu af krafti og tóku forystu frá fyrstu mínútu.  ÍBV-menn voru sýnd veiði en ekki gefin og héldu í við HK í fyrsta leikhluta.  Aðeins tók að draga í sundur með liðunum í öðrum leikhluta og HK-ingar gengu með gott forskot í hálfleik.  Þriðji leikhluti var alger eign HK-inga.  Í fjórða leikhluta snerist dæmið hinsvegar við og eyjapeyjar bitu hressilega frá sér og tóku upp á  að hitta í körfuna og þá sérstaklega fyrir utan 3ja stiga línuna.  ÍBV saxaði niður forskot  HK-inga jafnt og þétt, þjálfari  HK-manna fékk sína fimmtu villu og leikurinn í járnum.  Þegar 1 mínúta var eftir var staðan allt í einu orðin 74-71 fyrir HK og Eyjamenn með boltann.  En þá tóku HK-ingar leikhlé, en með útsjónarsemi kláruðu leikinn. 

 Leikmenn:   Sigurður G Benónýsson, Daði Guðjónsson 13 stig, Hlynur Andrésson 16 stig,  Tómas Orri Tómasson 6 stig,  Halldór Geirsson, Sæþór Orri Guðjónsson, Jón G Magnússon 23 stig, Jóhann Rafnsson, Smári Þorvaldsson 2 stig, Brynjar Ólafsson 11 stig,  Örvar Þrastarson.

Mynd - Gunnar Þór sem keyptur var til HK á miðju síðasta tímabili átti góðan leik í dag gegn fyrrum félögum sínum í ÍBV.

umfjöllun af:  http://www.hk.is (örlítið skrautlegri þar)

 Þannig að ÍBV á harma að hefna síðar..... 


ÍBV: útileikur við HK 16. okt. kl 14 í Fagralundi.

 

 ÍBV  2010 

Á laugardaginn 16. október kl. 14:00 í Fagralundi í Kópavogi leikur meistaraflokkur ÍBV í körfuknattleik sinn annan leik í 2. deildinni á þessari leiktíð.  Liðið sem tekur á móti leikmönnum ÍBV er Handknattsfélag Kópavogs, betur þekkt sem skammstöfunin HK.   HK hefur leikið 2 leiki á þessari leiktíð og unni þá báða:   KV með 42 stigum, 96 gegn 54 á heimavell, og leikur tvö á  Hellu og lögðu Heklu með 10 stigum, 47 gegn 57.
Þannig að þetta verður erfiður leikur hjá ÍBV. Þess vegna hvetur ibvkarfa.net alla Eyjamenn á Höfuðborgarsvæðinu að mæta og hvetja leikmenn ÍBV áfram.  Svo er mjög erfiður leikur hjá meistaraflokki eftir viku gegn efsta liðinu Reyni S.    Tekið af ibvkarfa.net

Sigur hjá ÍBV í fyrsta leik vetrarins.

Í gær lék meistaraflokkuribv2010sept_(2) ÍBV  fyrsta leik vetrarins undir stjórn  Jóns Gunnars Magnússonar.  Mótherjinn var Sindri frá Höfn í Hornafirði, sem var að spila sinn 3 leik.    ÍBV sigraði með  88 stigum gegn 55.
 
Leikmenn ÍBV:  Jón Gunnar, Tómas Orri, Sigurjón Örn, Hlynur Andrésar, Halldór, Örvar, Jóhann Rafn (Blómi), Sigurður Grétar og Þorvaldur

Stigaskor:     Jón Gunnar 21  Jóhann Rafn  17  Þorvaldur 15Hlynur Andrésar 14 Sigurjón Örn  8  Tómas Orri  8  Halldór 3   Örvar  2   Sigurður Grétar     0
 
 
 
 
 

Markmiðið að byggja upp öflugt lið.

01. október 2010

Jón Gunnar Magnússon þjálfar körfuboltann í vetur - Bjartsýnn á árangur

Jon Gunnar

- Nýi þjálfarinn í viðtali í Fréttum


Körfuknattleiksfélag ÍBV réði á haustmán­uðum nýjan yfirþjálfara. Sá á reyndar ættir sínar að rekja til Eyja en faðir Jóns Gunnars Magnússonar, Magnús Rúnar Jónsson, bjó hér með fjölskyldu sinni á Hásteinsvegi 52 þar til örlaganóttina 23. janúar 1973 og fjölskyldan sneri ekki aftur heim eftir gos. Þar til nú að Jón Gunnar kemur til að þjálfa körfubolta­­félag ÍBV.

 

„Er uppalinn Garðbæingur og fæddur 1981 sem gerir mig 29 ára," sagði Jón Gunnar þegar hann var beðinn um að segja svolítið frá sjálfum sér. „Ég byrjaði reyndar í körfubolta í Haukum en það var af þeirri einföldu ástæðu að það var enginn körfubolti hjá Stjörnunni á þeim tíma. Ég byrjaði 10 ára gamall í minnibolta árið 1991. Þegar ég var svo í 7. flokki byrjaði körfuboltinn hjá Stjörnunni loksins en við vorum nokkrir úr Garðabænum sem höfðum verið að æfa með öðrum félögum.

Ég fór reyndar ekki strax yfir, heldur spilaði aðeins lengur með Haukum en gaf mig að lokum og skipti yfir í Stjörnuna þegar allir félagarnir voru komnir þangað. Ég spilaði sem sagt frá og með 8. flokki og alveg upp í meistaraflokk.

Sigurjón Lárusson, sem nú býr hér í Eyjum, var einmitt einn af mínum félögum og við spiluðum saman upp yngri flokkana ásamt fleiri strákum. Við vorum með ágætis hóp í þessum árgangi og náðum að lokum alla leið upp í úrvalsdeild. Sjálfur spilaði ég fyrsta meistaraflokksleikinn 15 ára gamall," sagði Jón Gunnar en ástæða þess að hann byrjaði svona ungur í meistaraflokki var að hann tilheyrði elsta árgangi Stjörnunnar sem kom upp í gegnum yngri flokkana.

„Meistaraflokkur var þá í 1. deild eða þeirri næstefstu og það var mjög gott fyrir okkur, því þá fengum við strákarnir að spila meira en ef liðið hefði verið í úrvalsdeild. Við fengum því dýrmætt tækifæri sem við bjuggum svo að í framtíðinni. Ég á að minnsta kosti að baki nokkra leiki með meistaraflokki í úrvalsdeild."

 

Vildi alltaf segja mönnum til

Af hverju fórstu svo að þjálfa?

„Gallinn hjá mér var kannski lengi vel sá að ég var mikið fyrir það að greina hvað var í gangi. Mér fannst ég alltaf geta bent mönn­um á hvað þeir gætu gert betur þannig að fljótlega kom í ljós að það bjó einhver þjálfari í mér. Ég byrjaði sem aðstoðarþjálfari með Kevin Grandberg sem spilaði m.a. með ÍR og Stjörnunni en hann var að þjálfa yngri flokk­ana hjá Stjörnunni. Fljótlega var ég gerður að aðalþjálfara og hef mest haldið mig við þjálf­un drengja á aldrinum 14 til17 ára, þótt ég hafi þjálfað allan aldursskalann."

Svo hefur þú farið til Bandaríkjanna líka til að þjálfa í æfingabúðum?

„Já, ég hef reynt að gera það á hverju ári. 1996 fór ég í fyrsta skipti til Bandaríkjanna en þá fór 10. flokkur Stjörnunnar í æfingabúðir og ég var þá leikmaður. Björn Leósson, þjálf­ari hjá Stjörnunni, hafði tengsl við Banda­ríkin og við fórum til Gettysburg í Pennsylvaníu í æfingabúðir sem voru þar. Þetta var mjög skemmtileg ferð því við gist­um hjá fjölskyld­um, tveir og tveir saman þannig að við fengum að kynnast bandarísku samfélagi mjög vel. Mér fannst þetta svo gaman að þegar ég var að þjálfa flokk sem hafði áhuga á að fara út, hafði ég samband við sama aðila og komst að lokum að með liðið mitt í æfingabúðum svipuðum þeim og við fórum í á sínum tíma. Þær heita Keystone State og hafa verið starfræktar í yfir 20 ár. Eftir að hafa verið með mína stráka þarna í búðunum spurðist ég fyrir og óskaði eftir því að fá að vera lengur í æfingabúðunum að þjálfa. Það var sjálfsagt mál og þetta var það gaman að ég hef farið þarna út árlega og hef auk þess heimsótt fleiri æfingabúðir í Banda­ríkjunum, m.a. Sixers Camp, sem ég veit að einhverjir hér kannast við og svo Syracuse, þar sem að­stoðarþjálfari bandaríska landsliðsins heldur úti æfingabúðum."

 

Meiri agi og keppni í Banda­ríkjunum

Jón Gunnar segir að með þessum ferðum öðlist hann ekki aðeins meiri reynslu sem þjálfari, heldur stækkar tengslanet hans í ­körfuboltaheiminum. „Þetta er svolítið ­þannig að ef þú ert kominn inn í netið, þá geturðu alltaf fundið tengingu við aðila þarna úti. Það er alltaf maður sem þekkir mann. Ég hef farið svolítið víða og ef ég sé tækifæri til að taka þátt í svona æfingabúðum, þá stekk ég á það."

Sérðu mikinn mun á bandarískum og íslensk­um körfubolta?

„Já, það er gríðarlegur munur. Í Bandaríkj­unum verða ungir leikmenn góðir á undan þeim íslensku. Þarna úti er mikið lagt upp úr árangri enda er mikið undir. Leikmenn sem skara fram úr geta fengið háskólastyrki þann­ig að það er meira lagt upp úr að gera leikmenn mjög góða strax. Íslenskir leikmenn minnka bilið svo á unglingsaldrinum.

Auk þess er umhverfið meira hvetjandi úti í Bandaríkjunum, þar sem eru fleiri góðir leikmenn þannig að þú þarft virkilega að standa þig ef þú ætlar ekki að týnast. En á móti finnst mér við hér heima leggja meiri áherslu á grunnatriðin í körfuboltanum sem menn úti hafa minni áhyggjur af. Þar er það annað hvort þriggja stiga eða keyrt inn að körfunni en hér heima er lögð meiri áhersla á grunn­atriðin."

Jón Gunnar segir jafnframt að aginn sé miklu meiri úti en hér á Íslandi. „Aginn er gríðarlegur og þjálfarinn fær leyfi til að þrýsta mun meira á unga leikmenn en hér heima. Þannig er samfélagið bara, foreldrar standa á bak við þennan þrýsting þjálfaranna enda, eins og ég sagði áðan, þá er meira undir þarna úti varðandi háskólastyrki og annað. En samfélagið hér myndi aldrei leyfa sömu þjálf­unaraðferðir og þarna úti."

Og hvorri aðferðinni ertu hlynntari?

„Ég reyni að blanda þessu tvennu saman. Ég hef prófað báðar aðferðir en þykir best að blanda þessu saman. Það hafa margir ­skammað mig fyrir að vera með of erfiðar æfingar en þegar frá líður, þá sjá þeir að þeir hafa grætt á því. Best af öllu er hins vegar þegar allir leikmennirnir eru samtaka á æfingum og æfa á sama hraða. Þess vegna legg ég upp með að hafa æfingarnar skemmtilegar og vissar reglur inn á milli til að ýta aðeins við þeim."

 

„Eyjamaðurinn" snýr aftur

Nú hefur mekka körfuboltans ekki verið í Vestmannaeyjum. Hvernig leist þér á að koma hingað?

„Þeir voru nú góðir á sínum tíma, ég keppti m.a. á móti þeim í 1. deildinni. Sigurjón Lárusson, formaður körfuknattleiksdeildar ÍBV, er æskuvinur minn og pabbi, Magnús Rúnar Jónsson, bjó hér fram að gosi ásamt foreldrum sínum þannig að ég tengist Eyj­unum. Það var ekki svo stórt stökk fyrir mig að koma hingað. Foreldrar pabba hétu Ása Magnúsdóttir og Jón Hermundsson, þau ­bjuggu að Hásteinsvegi 52 en komu ekki aftur eftir gos.

Þá fluttu þau í Kópavoginn og pabbi byggði svo hús í Garðabæ þar sem við áttum svo heima. Þau hafa reyndar oft sagt við mig að ég sé Eyjamaður þannig að ég er kannski bara kominn heim. En það var sem sagt Sigurjón sem hafði samband við mig og ég gat eigin­lega ekki sagt nei, sérstaklega ekki þegar Landeyjahöfn er komin. Svo er það líka spennandi verkefni að taka við heilu félagi, taka meistaraflokk og yngri flokkana með og fá svolítið að móta þetta eftir mínu höfði."

 

Krakkarnir verða að velja

Jón Gunnari kom á óvart hversu mikill rígur er á milli íþróttagreina í Vestmannaeyjum.

„Það er eðlilegt að það sé einhver rígur á milli krakkanna en að það sé rígur á milli meðal fullorðna fólksins var eitthvað sem kom mér mjög á óvart. Það eru ekki allir sem finna sig í handbolta og fótbolta en gera það í frjálsum, sundi, fimleikum eða körfubolta. Það á að gefa börnum tækifæri til að finna sig í sinni íþrótt en ekki þvinga þau til þess að velja eina íþróttina umfram aðra. Ef krakkar velja handbolta, þá er það frábært en þau verða líka að fá tækifæri til að velja körfu­bolta. Valið verður að vera þeirra."

Hefurðu sett þér einhver markmið með meist­araflokk ÍBV í körfubolta?

„Markmiðið er auðvitað að byggja upp öflugt lið. Við kannski setjum ekki stefnuna á að fara upp í 1. deild, þótt það væri auðvitað mjög gaman. En miðað við þann hóp sem ég hef séð þá eigum við alveg að geta barist um að komast í úrslitakeppnina og svo sjáum við til hvað gerist þar. Hópurinn er auðvitað tvískiptur enda margir leikmenn liðsins sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Mér sýnist að það séu einfaldlega ekki nógu ­margir leikmenn hér til að fylla hópinn," sagði Jón Gunnar að lokum og skoraði á alla að prófa körfubolta.

 

Viðtalið birtist í vikublaðinu Fréttum.

 


Næsta síða »

Um bloggið

IBV KARFA

Höfundur

ÍBV KARFA ..
ÍBV KARFA ..

http://ibv.is/

 http://ibvkarfa.net

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IBV
  • ...0497_494056
  • IMG_0497
  • 10.flokkur
  • Flottir

Nýjustu myndböndin

Hverjir eru bestir...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband